Grilluð bleikja!

July 19, 2024

Grilluð bleikja!

Grilluð bleikja!
Hvort heldur sem maður grillar hana á útigrilli eða í ofninum þá elska ég þegar ég fæ góða Bleikju eða Urriða og þessi er út Þingvallavatninu. Ég var með bakaða kartöflu með, ferskt salat og kalda sósu úr Grískri jógúrt.

Kryddið fiskinn bæði að utan og innan með kryddi að ykkar vali. Ég notaði krydd með sítrónupipar sem sjá má á myndinni. Ég raðaði sítrónu sneiðum inni hann líka. Setjið hann inn í álpappír og annað hvort á útigrillið eða á grill í ofninu (180°c í um 20-25 mínútur og snúið honum við þegar tíminn er hálfnaður. Ef hann er settur á útigrill þá er tíminn aðeins styttri en gæta þarf vel að og snúa honum við, gott að kíkja aðeins á fiskinn eftir 10 mínútur til að sjá hvernig hann er að eldast.

Þarna má sjá hvernig hann er orðinn tilbúinn.

Ferskt salat með:
Íssalati frá Lambhaga
Gúrkusneiðum
Rauðri papriku
Radísum í sneiðum
Gellir salatostur

Köld sósa:
4 msk af Grískri jógúrt
2 tsk af Birki sírópi
Hrært saman og kælt og svo má bæta smá af graslauk út á sósuna áður en hún er borin fram. Minnsta mál að stækka uppskriftina ef fleirri eru en þessi er fyrir ca.2

Bökuð kartafla, sett í álpappír og gott er að salta kartöfluna allan hringinn áður. Bakið í ofni eða á grilli í 50-60 mínútur. Gott að setja kartöfluna á grillið ca 30 mínútunum áður en fiskurinn er settur á það.

Dásamleg máltíð með fersku salati, bakaðri og kaldri sósu.

Njótið þess að deila uppskriftinni áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Fiskréttir

Saltfisks hamborgari!
Saltfisks hamborgari!

May 17, 2026

Saltfisks hamborgari!
Ég tók út eitt saltfisk stk og ætlaði að elda mér um kvöldið, hvernig var ekki ákveðið en svo kom það. Steikti fiskinn á pönnu, kryddaði og skellti í hamborgarabrauð. Já það er svo gaman að gera eitthvað nýtt og það þarf ekki alltaf að vera bara hamborgari eða kjúklingaborgari í blessuðu brauðinu. 

Halda áfram að lesa

Gratineraður plokkfiskur!
Gratineraður plokkfiskur!

May 10, 2026

Gratineraður plokkfiskur!
Fátt er eins ljúffengt eins og heimagerður plokkfiskur með glænýju rúgbrauði.
Svo má ég til með að benda ykkur á að ef það er afgangur af plokkaranum þá má gera eitthvað nýtt og gott úr honum daginn eftir eins og setja hann sem fyllingu í smjördeig og skella inn í ofn.

Halda áfram að lesa

Fiskivika 1
Fiskivika 1

February 23, 2026

Fiskivika!
Hvernig væri að skella í eins og eina viku þar sem þið borðið bara fisk í hádegis/kvöldmat og njóta úrvalsins sem í boði er. Hérna eru hugmyndir fyrir eina viku og hver veit nema ég skelli í aðra fljótlega og deili með ykkur.

Halda áfram að lesa