Brauðterta með silung!

October 24, 2024

Brauðterta með silung!

Brauðterta með silung!
Hérna er á ferðinni afar bragðgóð rúlluterta með silungasalati sem var í kaffiboð hjá móður minni á 88.ára afmælisdaginn hennar. Virkilega góð!

1 rúllutertubrauð
300 gr reyktur silungur
1/2 dós Hellmanns majones og örlítið meira til að bera á hana
4 egg
Sítrónupipar

Til skreytingar:
Smásalat frá Lambhaga
Radísur
Eða annað að ykkar eigin vali...

Sjóðið egginn og kælið. Skerið silungaflakið í smáa bita.
Hrærið saman majonesi og blandið út í það eggjunum og silunginum og kryddið eftir ykkar smekk með sítrónupipar.

Setjið fyllinguna í rúllutertuna og rúllið henni upp og skreytið. Ég geri brauðterturnar alltaf daginn áður en ég ber þær fram en skreyti þær samdægurs.





Verði ykkur að góðu!

Þakklát fyrir allar deilingar áfram og leyfið mér endilega að heyra hvernig ykkur líkaði ef þið prufið uppskriftina, það má merkja okkur líka á Instagram.

Vertu velkomin að koma og vera með Brauðtertur & heitir réttir hópnum á feisbók




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Brauðréttir

Humar brauðterta!
Humar brauðterta!

November 23, 2024

Humar brauðterta!
Ég stóðst ekki freistinguna á að spyrja hvort ég fengi leyfi til að birta þessa uppskrift þegar ég sá hana, fékk góðfúslegt leyfi og ég að sjáfsögðu skellti mér svo í að gera hana og bjóða upp á í sunnudagskaffi hjá mér. Ég og gestirnir mínir gefa henni súpergóð meðmæli líka. Kettirnir fengu ekki smakk...:)

Halda áfram að lesa

Roastbeef brauðterta!
Roastbeef brauðterta!

November 13, 2024

Roastbeef brauðterta!
Ein af okkar uppáhalds brauðtertum er klárlega roastbeef brauðtertan. Þessa bjó ég til fyrir afmæli föður míns og ég keypti niðursneitt roastbeef hjá Kjöthöllinni sem var alveg æðislega gott, mæli með.

Halda áfram að lesa

Laxabrauðréttur
Laxabrauðréttur

November 01, 2024 2 Athugasemdir

Laxabrauðréttur
Einn af þessum réttum sem ég hef ætlað að gera í langan tíma. 
Virkilega góður kaldur réttur sem ég reyndar útfærði á minn hátt með því að setja í hann Svövu sinnepið og setja hann í smjördeigshring sem ég keypti að þessu sinni af Hérastubbs bakaranum frá Grindavík. 

Halda áfram að lesa