April 19, 2026
Kryddbollur!
Toro mix, já ég kaupi það stundum og finnst það rosalega gott, aðeins þarf að bæta saman við það olíu og eggi og ég set oftar en ekki mikinn hluta þess í frysti og tek út með súpum ofl. Hérna skellti ég í kryddbollur og eitt svona flatbrauð til að hafa með baunasúpunni sem ég bjó til.
Byrjið á að blanda saman þurrefnum, olíu og eggi.
Látið hefast yfir stofuhita í um það bil 1.klukkutíma, ég set dósina oft ofan á ofninn hjá mér ef ég vil flýta fyrir.
Mótið kúlur, penslið með eggi ofan á þær og stráið svo mismunandi kryddblöndum ofan á og setjið á bökunarpappír og inn í ofn á 180°c í um 10 mínútur, fylgist samt vel með, ofnar eru misjafnir.
Ég notaði þessar tegundir í þetta sinn

Ég útbjó líka eitt svona flatbrauð og stráið kryddi og saltflögum ofan á, ath að það þarf aðeins skemmri tími svo það verði ekki of dökkt/hart.



Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Köku & baksturs hópnum á facebook
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
January 07, 2026
Uppskrift að churros-kökum!
Churros-uppskrift með súkkulaði eða flórsykri. Keypt tilbúið eða gert frá grunni.
Ég fann eina uppskrift af þeim fyrir þá sem vilja skella í Churros veislu en margir þekkja þetta frá Spáni, Grikklandi og fleirri löndum.
December 01, 2025
Hunangsvalhnetu bananabrauð!
Skellti í þessa uppskrift lokssins núna en hún er búin að vera í uppskriftasafninu mínu í mörg ár og ég man ekkert hvaðan hún er komin en ljúffeng var hún.
October 18, 2025
Heimabakaðar skonsur!
Ég skellti mér í bakstur á skonsum loksins þar sem ég var að fara gera Skonsubrauðtertu með hangikjöti. Loksins segi ég nú bara en hún hafði verið á listanum mínum lengi.