July 12, 2025
Steikarloka!
Þegar maður á afganga af nautakjöti þá nýti ég þá upp til agna, svona eins og hægt er og hérna skellti ég í eina sjúklega góða steikarloku!
Ég kaupi 4 svona langlokur saman í poka í Bónus, snilld að frysta og eiga ef maður notar ekki nema 1 eða 2
Lambhaga salat
Kirsjuberjatómata eða svipaða
Bearnaise sósu kalda
Nautakjötsneiðar

Kjötið má setja annað hvort kalt á, hita upp á pönnu eða í smá stund í Air fryer, krydda með salt og pipar
Franska í Air fryer er snilld líka til að setja ofan á steikarlokuna 
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
November 08, 2026
Piparkökur með síld!
Stundum stenst maður ekki mátið í að smakka eitthvað nýtt og þarna ákvað ég að prufa að setja síld ofan á piparkökur og skreyta og aðeins neðar þá setti ég gráðost ofan á þær, þvílíka sælgætið bæði, mæli með.
October 09, 2026
Burrito með nautahakki!
Nýja uppáhaldið mitt og alveg svakalega gott. Snilld að útbúa og eiga í frystinum og gæða sér svo á þegar maður vill hvíla sig frá eldamennskunni, nú eða hreinalega bjóða fjölskylunni í Burrito veislu.
September 13, 2026
Píta með kjúklingaáleggi!
Hérna er ég með pítubrauð frá Hérastubb í Grindavík, kjúklingaálegg en minnsta mál er að skipta því út fyrir allsskonar álegg að eigin vali.