November 08, 2026
Piparkökur með síld!
Stundum stenst maður ekki mátið í að smakka eitthvað nýtt og þarna ákvað ég að prufa að setja síld ofan á piparkökur og skreyta og aðeins neðar þá setti ég gráðost ofan á þær, þvílíka sælgætið bæði, mæli með.



Piparkökur með gráosti, ljúft með góðum kaffi.
Fallegu bollarnir og skýjadiskarnir eru frá henni Ingu Elínu
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Köku & baksturs hópnum á facebook
Vertu velkomin að koma og vera með Brauðtertur & heitir réttir hópnum á feisbók
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
October 09, 2026
Burrito með nautahakki!
Nýja uppáhaldið mitt og alveg svakalega gott. Snilld að útbúa og eiga í frystinum og gæða sér svo á þegar maður vill hvíla sig frá eldamennskunni, nú eða hreinalega bjóða fjölskylunni í Burrito veislu.
September 13, 2026
Píta með kjúklingaáleggi!
Hérna er ég með pítubrauð frá Hérastubb í Grindavík, kjúklingaálegg en minnsta mál er að skipta því út fyrir allsskonar álegg að eigin vali.
August 03, 2026
Brauð í ofni með banana!
Það sem manni dettur í hug, já mér finnst bananar góðir í marga rétti, fiskrétti, ofan á pizzur, í boost, ofan á ristað brauð, einir og sér, í omelettur og núna í sneiðum ofan á brauð með osti og inn í ofn eða í Air Fryerinn. Skora á ykkur að prufa!