Samlokur & brunch réttir!

July 19, 2026

Samlokur & brunch réttir!

Samlokur & brunch réttir!
Hérna munu koma fleirri tillögur að samlokum og brunch réttum en fjölbreytileikinn er endalaus og allar tillögur frá ykkur eru meir en velkomnar. Bæti við svo meiru smátt og smátt.


Eggjasamloka: 1 egg písakað og kryddað eftir ykkar smekk. Ostur/skinka, 2 brauðsneiðar. Brauðið smurt, ostur settur á milli, 1-2 sneiðar og skinka ef vill. Samlokunni er síðan velt upp úr egginu og steikt á pönnu upp úr smjöri/smjörlíki. Borið fram með salati.

Pepperoní samloka: 2 brauðsneiðar, 2 ostasneiðar, 8 pepperoní. Smyrjið brauðið, leggið ost á, svo pepperoní og svo aftur það sama. Setjið svo samlokuna í Air fryer í um 5.mínútur. Ef þið eigið hann ekki til þá er annað hvort að setja hana á pönnu eða í grillið. Ég bar þessa fram með frönskum sem ég setti í Air fryerinn og kaldri bearnissósu.

Samloka með skinku, káli, tómötum, gúrku og pítusósu.

Bóndabrauð með steiktum hamborgarhrygg sneiðum og steiktu eggi með kokteilpylsum.
Ristið brauðið, steikið kjötið/pylsurnar á pönnu upp úr smjörlíki/olíu og spælið eggið.

Samloka með pítusósu/sinneps, salati, eggi, tómötum og gúrku.

Volg Kjallarabolla með pítu eða sinnepssósu, osti og afgangi af salati með eplabitum.

Langloka með Pítu eða Sinnepssósu, eggjum og afgangi af salati. Hægt að bæta saman við kjötafgöngum líka ef vill.

Hugmynd: Gott að velgja brauðið aðeins áður en það er fyllt.

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Smáréttir

Prótein vöfflur!
Prótein vöfflur!

July 05, 2026

Prótein vöfflur!
Hérna náði ég í 8 stk af ljúffengum próteinvöfflum. Mjög gott að setja hollt og gott álegg á þær eða hreinlega borða eintómar. Ég skellti þeim svo í ísskápinn og naut næstu daga á eftir en minnsta mál er líka að setja þær í frystinn og taka út eftir hendinni.

Halda áfram að lesa

Kínarúllur með hrísgrjónum!
Kínarúllur með hrísgrjónum!

February 07, 2026

Kínarúllur með hrísgrjónum!
Enn og aftur er það einfaldleikinn, því hver elskar hann ekki inn á milli þess sem maður er að elda allt frá grunni jafnvel, ég allavega þarf á honum að halda svona með og á milli.

Halda áfram að lesa

Beikonvafðar kokteil pylsur!
Beikonvafðar kokteil pylsur!

December 30, 2025

Beikonvafðar kokteil pylsur!
Beikonvafðar kokteil pylsur eru auðveldar og ljúffengar í partýin og veislurnar.
Henta vel á hvaða veisluborð sem er en líka bara þegar gleðja á krakkana með einhverju öðruvísi í matinn, þau elska það mörg hver eins og við.

Halda áfram að lesa