July 05, 2026
Prótein vöfflur!
Hérna náði ég í 8 stk af ljúffengum próteinvöfflum. Mjög gott að setja hollt og gott álegg á þær eða hreinlega borða eintómar. Ég skellti þeim svo í ísskápinn og naut næstu daga á eftir en minnsta mál er líka að setja þær í frystinn og taka út eftir hendinni. Ég notaði lítið vöfflujárn sem ég keypti mér en það er líka vel hægt að steikja þær eins og lummur á pönnu.
2 x egg
2 x banani
60 gr haframjöl
60 gr próteinduft eða meira af höfrum, þarna var ég með súkkulaðiprótein

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
August 03, 2026
Brauð í ofni með banana!
Það sem manni dettur í hug, já mér finnst bananar góðir í marga rétti, fiskrétti, ofan á pizzur, í boost, ofan á ristað brauð, einir og sér, í omelettur og núna í sneiðum ofan á brauð með osti og inn í ofn eða í Air Fryerinn. Skora á ykkur að prufa!
July 19, 2026
Samlokur & brunch réttir!
Hérna munu koma fleirri tillögur að samlokum og brunch réttum en fjölbreytileikinn er endalaus og allar tillögur frá ykkur eru meir en velkomnar.
February 07, 2026 2 Athugasemdir
Kínarúllur með hrísgrjónum!
Enn og aftur er það einfaldleikinn, því hver elskar hann ekki inn á milli þess sem maður er að elda allt frá grunni jafnvel, ég allavega þarf á honum að halda svona með og á milli.