June 24, 2021
Píta með buffi
Ég er mjög hrifin af pítum og datt heldur betur í lukkupottinn þegar ég fann bestu pítubrauðin að mínu mati í Fjarðarkaup en þau koma frá Passion bakaríinu. Ég kaupi mér alltaf nokkur saman og frysti til að eiga þegar mig langar í pítu.
Hamborgari/Fiskborgari
Pítubrauð
Salat
Tómatar
Agúrka
Rauðlauk
Pítusósa
Steikið hamborgarann og kryddið. Hitið brauðið þar til það er smá stökkt.
Skerið grænmetið niður og fyllið svo pítuna ykkar með öllu góðgætinu og pítusósunni.

Hérna er ég svo með Pítubrauð frá Hérastubbnum í Grindavík, matarmikil píturbrauð og mjög góð. Steiktur fiskur í raspi, gúrka, tómatar, salat og pítusósa.
Njótið!
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
September 13, 2026
Píta með kjúklingaáleggi!
Hérna er ég með pítubrauð frá Hérastubb í Grindavík, kjúklingaálegg en minnsta mál er að skipta því út fyrir allsskonar álegg að eigin vali.
August 03, 2026
Brauð í ofni með banana!
Það sem manni dettur í hug, já mér finnst bananar góðir í marga rétti, fiskrétti, ofan á pizzur, í boost, ofan á ristað brauð, einir og sér, í omelettur og núna í sneiðum ofan á brauð með osti og inn í ofn eða í Air Fryerinn. Skora á ykkur að prufa!
July 19, 2026
Samlokur & brunch réttir!
Hérna munu koma fleirri tillögur að samlokum og brunch réttum en fjölbreytileikinn er endalaus og allar tillögur frá ykkur eru meir en velkomnar.