March 20, 2025
Eggjakaka með spínati!
Og pepperoní, kokteiltómötum, osti, krydduð í lokin með salt og pipar frá t.d. Mabrúka sem er dásamlega fersk blanda.
Ég bætti við einu í viðbót svo þau voru 3
2-3 egg (eftir stærð)
Lúka af spínati
6 sneiðar af pepperóní
2-3 smá tómatar, niðursneiddir
Rifinn ostur

Pískið eggin vel saman og blandið spínatinu saman við. Setjið smjörlíki/olíu á pönnu og hellið blöndunni á. Raðið pepperóní ofan á og tómötunum, kryddið með salt og pipar og stráið svo ostinum ofaná. Um leið og osturinn er farinn að bráðna þá leggjið þið eggjakökuna saman til helminga. 



Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
September 13, 2026
Píta með kjúklingaáleggi!
Hérna er ég með pítubrauð frá Hérastubb í Grindavík, kjúklingaálegg en minnsta mál er að skipta því út fyrir allsskonar álegg að eigin vali.
August 03, 2026
Brauð í ofni með banana!
Það sem manni dettur í hug, já mér finnst bananar góðir í marga rétti, fiskrétti, ofan á pizzur, í boost, ofan á ristað brauð, einir og sér, í omelettur og núna í sneiðum ofan á brauð með osti og inn í ofn eða í Air Fryerinn. Skora á ykkur að prufa!
July 19, 2026
Samlokur & brunch réttir!
Hérna munu koma fleirri tillögur að samlokum og brunch réttum en fjölbreytileikinn er endalaus og allar tillögur frá ykkur eru meir en velkomnar.