Eðla! (Ostagums)

August 30, 2025

Eðla! (Ostagums)

Eðla! (Ostagums)
Einn af þessum vinsælu réttum sem margir elska að gæða sér á yfir sjónvarpinu og í veislum. Sósan getur verið ansi mismunandi og ég persónulega elska að prufa nýjar með, þá bæði sterkar, mildar, fjölbreyttar tegundir sem eru í boði en rjómaosturinn er þó ávallt grunnurinn og rifni osturinn yfir.

250-500 gr af rjómaosti
1 krukka af Salsa sósu
Rifinn ostur

Fyllið eldfast mót með rjómaostinu í botninum. Setjið sósuna þar ofan á og rifna ostinn. Setjið inn í ofn á 180°c í um 25.mínútur eða þar til osturinn er farinn að bráðna. Passið að hann verði ekki of dökkur.

Berið fram með Doritos eða Nachos og njótið vel.

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Smáréttir

Burrito með nautahakki!
Burrito með nautahakki!

October 09, 2026

Burrito með nautahakki!
Nýja uppáhaldið mitt og alveg svakalega gott. Snilld að útbúa og eiga í frystinum og gæða sér svo á þegar maður vill hvíla sig frá eldamennskunni, nú eða hreinalega bjóða fjölskylunni í Burrito veislu.

Halda áfram að lesa

Píta með kjúklingaáleggi!
Píta með kjúklingaáleggi!

September 13, 2026

Píta með kjúklingaáleggi!
Hérna er ég með pítubrauð frá Hérastubb í Grindavík, kjúklingaálegg en minnsta mál er að skipta því út fyrir allsskonar álegg að eigin vali.

Halda áfram að lesa

Brauð í ofni með banana!
Brauð í ofni með banana!

August 03, 2026

Brauð í ofni með banana!
Það sem manni dettur í hug, já mér finnst bananar góðir í marga rétti, fiskrétti, ofan á pizzur, í boost, ofan á ristað brauð, einir og sér, í omelettur og núna í sneiðum ofan á brauð með osti og inn í ofn eða í Air Fryerinn. Skora á ykkur að prufa!

Halda áfram að lesa