June 20, 2026
Túnfisksalat með steiktum lauk!
Oftar en ekki þá fer hrár laukur illa í marga og þá er bara að finna eitthvað nýtt með í staðinn og þá kemur þá steikti heitur inn og hann fór allavega ekki illa í mig í salatinu eins og sá hrái og salatið alveg æðislega gott, skemmtileg tilbreyting.
2 dl majones
1 dós túnfiskur í vatni
2 egg
1/2 dl steiktur laukur
1/2-1 dl af súrum agúrkum, skornar niður í bita
Sjóðið eggin, hrærið majonesið vel, takið vatnið af túnfisknum og bætið saman við ásamt eggjunum, steikta lauknum og súru gúrkunum og hrærið vel saman, kryddið eftir smekk, ég notaði Seson All salt frá By Artos sem fæst hérna á síðunni. Kælið og berið svo fram með kexi eða snittubrauði og njótið.



Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
February 14, 2026
Crown Chicken Kjúklingasalat!
Já er það ekki bara...man einhver eftir pítunni okkar á Crown Chicken sem var með kjúklingasalatinu...jéés maður var búin að laga mörg hundruð kíló af þessu salati
November 09, 2025
Rjómalagað gúrkusalat!
Alltaf svo gaman að prufa nýtt meðlæti og hérna skellti ég í ferskt gúrkusalat og var með ljúffengum fiskrétt en það passar vel með kjúkling og kjötréttum líka.
September 03, 2025
Eplasalat ferskt!
Dásamlega ferskt og gott, hvort heldur á sumri til eða yfir háveturinn þá léttir það lund og er það að auki einstaklega holt og gott, hvort heldur með mat eða sem máltíð.