Crown Chicken Kjúklingasalat!

February 14, 2026

Crown Chicken Kjúklingasalat!

Crown Chicken Kjúklingasalat!
Já er það ekki bara...man einhver eftir pítunni okkar á Crown Chicken sem var með kjúklingasalatinu...jéés maður var búin að laga mörg hundruð kíló af þessu salati...alltaf jafn gott...eigið hann góðan...meiri spænska á morgun...Hasta mañana...(asta manjana) sagði hann Helgi og deildi með okkur uppskriftinni sinni af salatinu😉

Margir hafa haft samband við mig og óskað eftir uppskrift af Crown Chicken Kjúklingasalatinu, hér kemur hún í slumpum...sagði hann Helgi B.Helgason matreiðslumeistari með meiru og hugmyndasmiðurinn og eigandinn af By Artos kryddunum sem nú eru fáanlega á Íslandi, þar á meðal hérna á síðunni fyrir áhugasama.

Saxaður eldaður kjúklingur. (Við notuðum steikta kjúklinginn okkar mínus skinn og kryddhúðina).
Sætt sinnep
Söxuð græn paprika (gul og rauð passar líka fínt).
Saxaðar súrar agúrkur
Gott majones.
Öllu blandað vel saman og smakkað til með ögn meira af sinnep og eða majónesi.
Gott inn í grillað pítu- eða pylsubrauð með fersku Iceberg salati, tómötum og agúrgusneiðum...

Verði ykkur að góðu.
HBH

Ég auðvitað stóðst ekki mátið þegar ég átti til afgang af kjúkling hérna að henda í blessað salatið með reyndar smá tvisti þar sem ég átti ekki alveg til allt en það kom ekki að sök, prufa bara ekta útgáfuna næst!

Skellt í salatið...

Tilbúið, bæði ofan á brauð eða í pítuna

Ég smellti mér í eina pítu


Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Salöt

Rjómalagað gúrkusalat!
Rjómalagað gúrkusalat!

November 09, 2025

Rjómalagað gúrkusalat!
Alltaf svo gaman að prufa nýtt meðlæti og hérna skellti ég í ferskt gúrkusalat og var með ljúffengum fiskrétt en það passar vel með kjúkling og kjötréttum líka.

Halda áfram að lesa

Eplasalat ferskt!
Eplasalat ferskt!

September 03, 2025

Eplasalat ferskt!
Dásamlega ferskt og gott, hvort heldur á sumri til eða yfir háveturinn þá léttir það lund og er það að auki einstaklega holt og gott, hvort heldur með mat eða sem máltíð.

Halda áfram að lesa

Ferskt salat með túnfisk ofl!
Ferskt salat með túnfisk ofl!

March 12, 2025

Ferskt salat með túnfisk ofl!
Gott hvort heldur að fá sér í hádeginu/kvöldin eða taka með sér í nesti í vinnuna, ferðalagið eða göngutúrinn langa.

Halda áfram að lesa