Fiskur í sojasósu!

June 11, 2025

Fiskur í sojasósu!

Fiskur í sojasósu!
Þessi útfærsla af mareneruðum fisk var eitthvað sem kom mér mikið á óvart, ekki bara algjört sælkera, heldur eitt af því einfaldasta sem hægt er að útbúa og ég skora á ykkur öll að prufa þetta, þar að segja ef þið hafið ekki gert það nú þegar!


Fiskur og Soja sósa, ég var með þorsk

Hellið sojasósunni yfir fiskinn og látið hann marenerast í 4-8 tíma

Fiskurinn drekkur í sig sojasósunni á mjög stuttum tíma

Veltið þá fiskinum upp úr hveiti og steikið hann á pönnu upp úr smjöri/smjörlíki eða olíu. Steikið hann í nokkrar mínútur á hvorri hlið á millihita.



Ef það eru fleirri í mat, þá er bara um að gera að marenera meira af fisk.


Ég sauð kartöflur (ca 18 mínútur) og skar þær síðan í sneiðar og steikti lítilega á pönnunni með fiskinum og setti smá af saltflögum ofan á

Og með þessu var ég svo með dásamlega ferskt salat. 
Lambhaga salatblöndu
Tómata
Agúrku 
Fetaost og toppaði svo með Sinnepssósu sem ég keypti í Krónunni

Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.

Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Fiskréttir

Saltfisks hamborgari!
Saltfisks hamborgari!

May 17, 2026

Saltfisks hamborgari!
Ég tók út eitt saltfisk stk og ætlaði að elda mér um kvöldið, hvernig var ekki ákveðið en svo kom það. Steikti fiskinn á pönnu, kryddaði og skellti í hamborgarabrauð. Já það er svo gaman að gera eitthvað nýtt og það þarf ekki alltaf að vera bara hamborgari eða kjúklingaborgari í blessuðu brauðinu. 

Halda áfram að lesa

Gratineraður plokkfiskur!
Gratineraður plokkfiskur!

May 10, 2026

Gratineraður plokkfiskur!
Fátt er eins ljúffengt eins og heimagerður plokkfiskur með glænýju rúgbrauði.
Svo má ég til með að benda ykkur á að ef það er afgangur af plokkaranum þá má gera eitthvað nýtt og gott úr honum daginn eftir eins og setja hann sem fyllingu í smjördeig og skella inn í ofn.

Halda áfram að lesa

Fiskivika 1
Fiskivika 1

February 23, 2026

Fiskivika!
Hvernig væri að skella í eins og eina viku þar sem þið borðið bara fisk í hádegis/kvöldmat og njóta úrvalsins sem í boði er. Hérna eru hugmyndir fyrir eina viku og hver veit nema ég skelli í aðra fljótlega og deili með ykkur.

Halda áfram að lesa