February 23, 2026
Fiskivika 1
Hvernig væri að skella í eins og eina viku þar sem þið borðið bara fisk í hádegis/kvöldmat og njóta úrvalsins sem í boði er. Hérna eru hugmyndir fyrir eina viku og hver veit nema ég skelli í aðra fljótlega og deili með ykkur.
Fiskinn þessa vikuna fyrstu dagana keypti ég í Fiskbúðinni Aldan í Spönginni.
Fiskibollurnar átti ég til og einnig fiskinn sem ég notaði í Mareneraða sojafiskinn og plokkfiskinn.
Ath. Minnsta mál er að breyta uppröðun vikunnar og aðlaga að ykkar smekk.
Mánudagur
Léttsaltaður Kinnfiskur

2-3 kinnar á mann
Soðnar kartöflur
Smjör, brætt
Smávegis af saltflögum
Steinselja
Látið sjóða í ca 10 mínútur
Sjóðið kartöflur. Meðalstórar þurfa ca.18 mínútur frá því að suðan kemur upp. Bræðið smjörið og saxið smá af steinselju og setjið út í ásamt smávegis af saltflögum ef vill.
Hellið smjörinu yfir fiskinn og kartöflurnar.
Þriðjudagur
Hrogn og kinnfiskur
Hrogn matreiðsla:
Gott er að vefja álpappír þétt utan um hvert hrogn og salta þau áður en þau eru sett i pottinn. (ég pipraði þau líka aðeins)
Þau eru soðin í 15-20 mínútur eftir stærð.
Með þessu var ég með brætt smjör og Sælkerarúgbrauð
Miðvikudagur
Rauðspretta velt upp úr smá hveiti og brauðraspi
1 Rauðsprettuflak (á mann) kryddað með Sítrónupipar, ég notaði þann sem ég á
frá By Artos og það vill svo til að hann er seldur hérna á heimasíðunni. Blandið saman smá af hveiti (má sleppa) og brauðraspi og veltið fiskinum upp úr blöndunni og steikið svo á pönnu upp úr smjöri/smjörlíki/olíu eftir ykkar eigin smekk í ca.15 mínútur.
Soðnar kartöflur, skornar í báta og steiktar lítilega á pönnunni með rauðsprettunni.
Með rauðsprettunni bar ég fram kartöflubátna og ferkst salat sem ég útbjó úr salati frá Lambhaga, tómötum, gúrkum, blaðlauk og papriku. Skellti svo lítilega af fetaosti yfir.
Svo toppaði ég salatið með Sinnepssósu sem ég keypti í Krónunni, ein af mínum uppáhalds.
Fimmtudagur
Heimagerðar fiskibollur (sem ég átti til í frysti) fást víða mjög góðar.
Sjóðið kartöflur. Steikið fiskibollurnar og berið fram með brúnni sósu. Ég útbjó brúna sósu frá Toro sem mér finnst alltaf gott að eiga til. 
Fiskibollurnar bar ég svo fram með kartöflum, sósu og ferska salatinu sem ég hafði útbúið í byrjun vikunnar en ég bý alltaf til slatta og geymi í alveg meiriháttar ílátum sem heldur þeim ferskum í um viku. Þau keypti ég í Heimaskipulag.i og flokkast undir nestisbox, mæli með.
Föstudagur
Fiskibollu raggú
Á föstudeginum var ég svo með fiskibollu raggú, þar sem ég skar restina af fiskibollunum, kartöflunum og blandaði saman við sósuna ásamt smá af blaðlauk. Þetta bar ég svo fram með salati.
Laugardagur
Þorskur mareneraður í sojasósu.
Þorsk stk mareneneruð í sojasósu í ca 2-3 tíma. Alveg nægur tími þar sem sojasósan er ansi sölt. Veltið fiskinum því næst upp úr hveiti og steikið á pönnu upp úr smjöri/smjörlíki/olíu, þið veljið fyrir ykkur. Berið fram með hrísgrjónum eða kartöflum og fersku grænmeti eins og t.d. tómötum, gúrkum, bláberjum og sósu úr Grískri jógúrt með smávegis af Hrútaberjasírópi/Birkisírópi eða öðru sambærilegu.
Sunnudagur
Plokkfiskur 
500-700 gr soðinn fiskur
400-500 gr soðnar kartöflur
100 gr smáttskorinn laukur eða 1 laukur
100 gr smjör/smjörlíki
100 gr hveiti
5 dl mjólk
salt og pipar
Bakið upp sósuna með því að bræða smjörlíki og bæta svo hveitinu saman við svo úr verði smjörbolla. Þynnið hana svo með mjólkinni. Kryddið með salt og pipar og smakkið til. Bætið smátt skornum lauknum út í og svo fiskinum og kartöflunum og látið malla í smá stund.
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
January 30, 2026
Sítrónu-silungur!
Silungur kryddaður með sítrónupipar og steiktur á pönnu, borinn fram með bakaðri kartöflu og ljúffengu agúrku-rjómasalati og sinnepssósu, alveg æðisleg blanda.
January 15, 2026
Saltfiskur, steiktur á pönnu!
Hérna er ein afar einföld fyrir einsetufólk eins og mig. Ég hafði reyndar fengið gefins tvær kanarískar sósur sem margir kannast nú við, 1 rauða Mojo Rojo og 1 græna Mojo Verde sem ég notaði bæði með fiskinum og ofan á kartöflurnar sem ég eldaði á spænska vísu.
October 13, 2025
Sweet Chili fiskur!
Fiskréttur og fiskréttur og óteljandi útfærslur. Hérna kemur ein frá mér sem ég prufaði að gera og var svakalega góð, svo góð að henni er hér með deilt með ykkur. Hún er líka svo einstaklega einföld að allir ættu að geta orðið meistarar í matargerð sinni.