Fiskibollur Tikka Masala!

July 29, 2024

Fiskibollur Tikka Masala!

Fiskibollur Tikka Masala!
Já það má alveg breyta út kjúkling fyrir fiskibollur eða jafnvel einhverju öðru í sósurnar frá Toro. Hérna smellti ég í einn ljúffengan rétt með glútenlausum fiskibollum frá Fiskikónginum sem ég verslaði mér á tveir fyrir einn dögunum þeirra í febrúar á Fiskbúarmánuðinum þeirra. Útkoman, dásamleg og snilldarinnar tilbreyting frá öllum hinum sósunum sem ég hef prufað með fiskibollum. Skora á ykkur að prufa.

Ég notaði 250 ml fernu af kókosmjólk og 550 ml af vatni á móti en vökvainnihald pakkans af Tikka Masala sósunni hljóðar upp á samtals 800 ml

Hitið saman innihald pakkans og vökvans og látið blandast vel, bætið þá sama við grænmetinu og fiskibollunum. 

1 pk Tikka Masala sósa frá Toro
250 ml af kókosmjólk í fernu eða samskonar
550 ml af vatni
6 fiskibollur, skerið þær í 4 bita hvora
1/3 blaðlaukur, skorinn í sneiðar
3-4 gulrætur, skornar niður í sneiðar
1/2-1 paprika, ég notaði rauða
Ca.6-8 kartöflur, eftir stærð (sjóðið sér)

Fiskibollurnar eru skornar í 4 bita

Sjóðið kartöflurnar sér og skerið þær í bita þegar þær eru tilbúnar og bætið þeim saman við.

Hellið yfir í eldfast mót, stráið yfir smávegis af Parmesan osti eða öðrum sambærilegum, ég nota oft líka Primadonna ost, bara eftir því hvað ég á til og skreytið svo að vild. Ég notaði þarna Steinselju sem ég átti til ferska úti.

Tikka Masala pakkinn frá Toro hentar vel með hverju sem er...

Njótið vel!

Velkomið að deila uppskriftinni áfram á síðurnar ykkar.


Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Fiskréttir

Saltfisks hamborgari!
Saltfisks hamborgari!

May 17, 2026

Saltfisks hamborgari!
Ég tók út eitt saltfisk stk og ætlaði að elda mér um kvöldið, hvernig var ekki ákveðið en svo kom það. Steikti fiskinn á pönnu, kryddaði og skellti í hamborgarabrauð. Já það er svo gaman að gera eitthvað nýtt og það þarf ekki alltaf að vera bara hamborgari eða kjúklingaborgari í blessuðu brauðinu. 

Halda áfram að lesa

Gratineraður plokkfiskur!
Gratineraður plokkfiskur!

May 10, 2026

Gratineraður plokkfiskur!
Fátt er eins ljúffengt eins og heimagerður plokkfiskur með glænýju rúgbrauði.
Svo má ég til með að benda ykkur á að ef það er afgangur af plokkaranum þá má gera eitthvað nýtt og gott úr honum daginn eftir eins og setja hann sem fyllingu í smjördeig og skella inn í ofn.

Halda áfram að lesa

Fiskivika 1
Fiskivika 1

February 23, 2026

Fiskivika!
Hvernig væri að skella í eins og eina viku þar sem þið borðið bara fisk í hádegis/kvöldmat og njóta úrvalsins sem í boði er. Hérna eru hugmyndir fyrir eina viku og hver veit nema ég skelli í aðra fljótlega og deili með ykkur.

Halda áfram að lesa