Royal Bananasplitt

April 15, 2023

Royal Bananasplitt

Royal Bananasplitt
Ég hef haft gaman að því að setja Royal búðingana í smá tvist, þótt svo að sumir í fjölskyldunni vilji bara venjulegan og ekkert tvist þá finnst öðrum oft gaman að þessu hjá mér og oftar en ekki bara mjög gott. 

Þessi heppnaðist bara mjög vel og er alveg svakalega einfaldur en með tvisti.

1.pk af Bananasplitt Royal búðing
500 ml af mjólk
Makkarónukökur

Hrært saman

Takið eins og tvær lúkur af makkarónukökum og setjið í poka og kremjið vel. 
Setjið í botninn á hverri skál og hellið svo blöndunni af búðing yfir (ekki láta ykkur bregða þótt svo að makkarónukökurnar fljóti upp, dippið þeim bara smá niður aftur) Og setjið svo inn í ísskáp. Gott er að setja svo smá af kurlinu ofan á til að skreyta og smá rjóma ofan á líka. (Gleymdi hreinlega að mynda það)

Skemmtilegt hvað þetta tónaði nú vel saman.

Það væri svo gaman að heyra ef þið prufið þetta, hvernig ykkur likaði.

Njótið þess að deila uppskriftinni áfram á síðurnar ykkar.

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

EÐA

Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni







Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Eftirréttir

Hindberjapæ Lilju!
Hindberjapæ Lilju!

October 30, 2025

Einfalda lífræna hindberjapæið (Lilju útgáfa)
Fékk þetta dásamlega góða pæ í boði og það heillaði mig svo að ég bað um uppskriftina sem var auðfengin með hennar tvisti. 

Ég tók svo mitt eigið tvist á það og nýtti mitt hefðbundna hráefni en næst mun ég vera búin að verða mér út úm hrásykur, lífrænt haframjöl, spelt og vínsteins lyftiduft, já þessi tvist.

Halda áfram að lesa

Ástakaka Lemon Curd!
Ástakaka Lemon Curd!

August 10, 2025

Ástakaka Lemon Curd!
Engin venjuleg "ekki" ostakaka, heldur einhver töfra formúla sem hefur verið búin til og enginn af mínu fólki hefur fundið muninn á. Svo, þessi hentar ekki bara fyrir þá sem eru með óþol fyrir ostum eða mjólkuvörum, heldur fyrir alla. Fyrir mína parta, æðisleg ásta/osta kaka.

Halda áfram að lesa

Ástarosta kaka vegan!
Ástarosta kaka vegan!

June 15, 2025

Ástarosta kaka vegan!
Engin venjuleg "ekki" ostakaka, heldur einhver töfra formúla sem hefur verið búin til og enginn af mínu fólki hefur fundið muninn á. Svo, þessi hentar ekki bara fyrir þá sem eru með óþol fyrir ostum eða mjólkuvörum, heldur fyrir alla. Fyrir mína parta, æðisleg ásta/osta kaka.

Halda áfram að lesa