October 30, 2025
Einfalda lífræna hindberjapæið (Lilju útgáfa)
Fékk þetta dásamlega góða pæ í boði og það heillaði mig svo að ég bað um uppskriftina sem var auðfengin með hennar tvisti.
Ég tók svo mitt eigið tvist á það og nýtti mitt hefðbundna hráefni en næst mun ég vera búin að verða mér út úm hrásykur, lífrænt haframjöl, spelt og vínsteins lyftiduft, já þessi tvist.
Grunnur
500 gr nýtínd fersk hindber (eða frosin)
1/2 dl blanda af hlynsýrópi og hrásykri
Ég notaði frosin hindber sem sum hver voru ansi súr að mínum smekk á meðan aðrir elskuðu það en Lilja var með dásamleg hindber úr eigin garði sem voru himnesk.
Blandið saman hindberjunum og hrásykri
Deigið
175 gr smjör, brætt
1.5 dl hrásykur
örlítið salt
tæpl 2 dl lífrænt haframjöl
3 dl sigtað spelt
1 tsk vínsteins lyftiduft

Bræðið smjörið og kælið 
Blandið þurrefnunum saman við

Setjið þurrefnin ofna á berjablönduna og þjappið lítilega með skeið eða hníf. Ef ykkur finnst degið vera of mikið, ekki sleppa neinu af því.
Setjið inn í ofn á 180°c í um það bil 25-30 mínútur, fylgist með.
Borið fram með rjóma
Í kaffiboðinu var ég líka með Bananabrauð með haframjöli og valhnetum og skonsubrauðtertu með hangikjöti.
Bauð foreldrum mínum í kaffiboð og hérna er móðir mín Kristín alsæl með veitingarnar.
Deilið með gleði...
Þið finnið okkur líka á Instagram
Vertu velkomin að koma og vera með í Köku & baksturs hópnum á facebook
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
August 10, 2025
Ástakaka Lemon Curd!
Engin venjuleg "ekki" ostakaka, heldur einhver töfra formúla sem hefur verið búin til og enginn af mínu fólki hefur fundið muninn á. Svo, þessi hentar ekki bara fyrir þá sem eru með óþol fyrir ostum eða mjólkuvörum, heldur fyrir alla. Fyrir mína parta, æðisleg ásta/osta kaka.
June 15, 2025
Ástarosta kaka vegan!
Engin venjuleg "ekki" ostakaka, heldur einhver töfra formúla sem hefur verið búin til og enginn af mínu fólki hefur fundið muninn á. Svo, þessi hentar ekki bara fyrir þá sem eru með óþol fyrir ostum eða mjólkuvörum, heldur fyrir alla. Fyrir mína parta, æðisleg ásta/osta kaka.
December 20, 2024