February 28, 2026
Vegan ostakaka með súkkulaði!
Ég get með sanni sagt ykkur að það fann enginn mun á hvort ég var með alvöru smjörost eða alvöru rjóma því svo var ekki. Ég var með vegan Smurástinn frá Live Food og svo var ég með hafrarjóma. Suðusúkkulaði var svo brætt og blandað saman við sýrðan rjóma. En nokkrir sem fundu þó fyrir mun á líðan og höfðu orð á því, þeim leið mun betur í maganum.
Þessi hefur komið hérna áður en núna kemur hún aftur sem vegan, æðislega góð.
200-250 gr af makkarónu kökum
100 gr vegan smjör brætt yfir kökurnar og þjappað saman í botninn
500 gr af Live Food vegan smjörostinum, sjá mynd
200 gr flórsykur
3 tsk vanillusykur
þetta hrært saman
2 fernur af Hafrarjóma (þeytt og blandað saman varlega við hina blönduna)
krem:
150 gr súkkulaði brætt
1 dós sýrður rjómi
1 msk olía
þessu blandað saman og sett yfir kökuna
Það er hægt að setja hana í eldafast mót, kökumót og svo er líka hægt að setja hana í litlar og sætar skálar.
Smurosturinn frá Live Food
Hafrarjóminn
Rjóminn þeyttur
Bryðjið makkarónurnar smátt og setjið í botninn
Bræðið smjörið og hellið jafnt yfir
Dreyfið blöndunni yfir
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og blandið svo saman við sýrða rjóman og olíuna
Berið súkkulaðið yfir
Skreytið með smá af makkarónunum
Gaman líka að setja í skálar
Njótið þess að deila áfram á síðurnar ykkar.
Finnið síðuna líka á Instagram og endilega merkið/taggið ef þið eru að gera eftir uppskriftunum, það væri virkilega ánægjulegt.
Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni
EÐA
Vertu velkomin að koma og vera með í hóp Sælkera á feisbókinni
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
November 29, 2025 1 Athugasemd
Ís með karamellukurli!
Hefðbundin uppskrift af ís með Rjómasúkkulaði með Karamellukurli og íslensku sjávarsalti frá Síríus. Ég elska að brjóta upp þetta hefðbundna og prufa allsskonar súkkulaðifyllingar, hver það verður næst verður áhugavert að sjá.
October 30, 2025
Einfalda lífræna hindberjapæið (Lilju útgáfa)
Fékk þetta dásamlega góða pæ í boði og það heillaði mig svo að ég bað um uppskriftina sem var auðfengin með hennar tvisti.
Ég tók svo mitt eigið tvist á það og nýtti mitt hefðbundna hráefni en næst mun ég vera búin að verða mér út úm hrásykur, lífrænt haframjöl, spelt og vínsteins lyftiduft, já þessi tvist.
August 10, 2025
Ástakaka Lemon Curd!
Engin venjuleg "ekki" ostakaka, heldur einhver töfra formúla sem hefur verið búin til og enginn af mínu fólki hefur fundið muninn á. Svo, þessi hentar ekki bara fyrir þá sem eru með óþol fyrir ostum eða mjólkuvörum, heldur fyrir alla. Fyrir mína parta, æðisleg ásta/osta kaka.