Rice Krisipies kökur

February 10, 2024

Rice Krisipies kökur

Rice Krisipies kökur
Ein af þeim sem hafði ekki verið gerð í yfir 20 ár. Frábær í afmæli og allir geta tekið höndum saman og útbúið eins og við gerðum ég og sonurinn og barnabarnið á þriðja ári.

(20-25 stk)

80 gr smjör
150 gr suðusúkkulaði
6 msk sýróp
5 bollar Rice Krispies

Bræðið saman suðusúkkulaði, sýrópi og smjöri á vægum hita og látið blandast vel saman. Takið pottinn af hellunni og bætið út í Rice Krispi og látið þekja vel. Einstaklega einföld uppskrift og hægt að setja hvaða morgunkorn út í. 

Fyllið svo með skeið litil möffins mót og kælið. Snilld að eiga svo í frystinum og taka út eftir hendinni eða þegar gesti ber að garði.

Það er afar einfalt að stækka uppskriftina og það gerðum við. 

Geymið í frysti.

Deilið með gleði,,,

Vertu velkomin að koma og vera með í Köku & baksturs hópnum á facebook

 




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.


Einnig í Bakstur

Kryddbollur!
Kryddbollur!

April 19, 2026 1 Athugasemd

Kryddbollur!
Toro mix, já ég kaupi það stundum og finnst það rosalega gott, aðeins þarf að bæta saman við það olíu og eggi og ég set oftar en ekki mikinn hluta þess í frysti og tek út með súpum ofl. Hérna skellti ég í kryddbollur og eitt svona flatbrauð til að hafa með baunasúpunni sem ég bjó til. 

Halda áfram að lesa

Churros!
Churros!

January 07, 2026

Uppskrift að churros-kökum!
Churros-uppskrift með súkkulaði eða flórsykri. Keypt tilbúið eða gert frá grunni.
Ég fann eina uppskrift af þeim fyrir þá sem vilja skella í Churros veislu en margir þekkja þetta frá Spáni, Grikklandi og fleirri löndum.

Halda áfram að lesa

Hunangsvalhnetu bananabrauð!
Hunangsvalhnetu bananabrauð!

December 01, 2025

Hunangsvalhnetu bananabrauð!
Skellti í þessa uppskrift lokssins núna en hún er búin að vera í uppskriftasafninu mínu í mörg ár og ég man ekkert hvaðan hún er komin en ljúffeng var hún.

Halda áfram að lesa