Smjörkrem!

January 22, 2025

Smjörkrem!

Smjörkrem!
Smjörkrem er eitt af þessum allra vinsælustu kremum sem notuð eru í hversskonar bakstur. Notað bæði inn í smákökur eins og mömmukökur, piparkökur og vanillukossa og síðan ofan á kökur og tertur.

Smjörkrem einföld uppskrift:

125 g smjör
125 g flórsykur
1 eggjarauða
1/2 tsk vanillusykur


Smjörkrem tvöföld uppskrift:

250 g smjör
250 g flórsykur
2 eggjarauður
1 tsk vanillusykur


Smjör og sykur þeytt vel saman í hrærivél og eggjarauðu/unum og vanillusykri bætt út í. Þeyttið vel.

Dásamlegt ef deilt er áfram og svo finnur þú síðuna líka á Instagram

Vertu velkomin að koma og vera með í Köku & baksturs hópnum á facebook

Vertu velkomin að koma og vera með í Heimilismatur hópnum á feisbókinni

Vertu velkomin að koma og vera með Brauðtertur & heitir réttir hópnum á feisbók




Skildu eftir athugasemd

Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.