June 25, 2025
Pizzaskóli Grazia Trattoría!
Við skelltum okkur vinkonurnar loksins í pizzaskólann hjá Grazia Trattoría en við vorum búnar að vera spenntar fyrir því að fara frá því í fyrra (2024). Þarna var saman komin góður hópur af áhugasömum pizzaáhuga unnendum til að læra að gera sína eigin pizzu og pizzadeig að hætti Nabolíbúa. Sumir hverjir áttu sína eigin pizzaofna og spannst upp umræða hver þeirra væri góður og afhverju og lærðum við það allavega að það væri annað hvort gott að eiga 16" ofn eða með snúning svo það væri ekki erfitt að snúa pizzunni, góðir punkar þar.
Ég féll gjörsamlega fyrir þessu, já og að eiga pizzaofn með snúning og varð ofninn frá Jax handverk, honum Jóni Axel Ólafssyni fyrir valinu og ég gat sagt ykkur að pizzur og pizzagerð fór upp á algjörlega nýja hæð hjá mér, dúndur græja.
Inngangurinn þar sem ferlið er kynnt fyrir okkur...
Pizzadeigið
Nú þeir félagar Carlos og Michael kynntu hvorn sinn hlutann sem kemur að pizzagerðinni og fræddu okkur um þennan skemmtilega heim pizzunnar.
Þá var bara að græja á sig svuntu og skella sér í hanska og byrja
Ég get sagt ykkur að þarna voru þvílíkar meistarahendur að verki, sumar svo reyndar að þær voru ráðnar á staðnum, laun, Limoncello eins og þú gast í þig látið eða svona innan skynsemismarka!
Eftir það hófumst við handa hvert og eitt og sýndum okkar listatakta í pizzagerðinni.
Þarna lærði maður hvaða sósu var best að vera með.
Smelltum svo á þessari æðislegu pizzatómatsósu, mosarella ostinum sem var rifinn og alveg einstaklega ljúffengur og svo var það basilíkan og fyrir þá sem vildu, toppað með pepperoní.
Þarna fengum við sýnikennslu í hvernig best væri að skella pizzunni í ofninn, sjóðandi heitan!
Dásamlegt að sjá pizzurnar snúast þarna inni
Þá tók við að skella pizzunni í um 350°c heitan ofninn eftir sýnikennsluna í því áður og viti menn, ég skellti henni inn eins og fagmaður en óskaði reyndar aðstoðar við að sækja hana inn aftur alveg sjóðandi heita og kraumandi, þvílíka pizzan, þvílíka veislan og þið segjið ekki neinum frá en það varð ekki arða eftir af henni!
Þetta var dásamlega skemmtileg samverustund með vinkonu og þarna mátti sjá saman komnar fjölskyldur, vini, feðga, mæðgur, pör og hjón og allir svo innilega glaðir með pizzagerðina sína. Ég mæli virkilega með og núna langar mig til að fara á pasta námskeiðið hjá þeim líka. Ég deili því þá með ykkur.
Texti & myndir
Ingunn Mjöll/Islandsmjoll
Athugasemdir verða samþykktar áður en þær birtast.
February 19, 2025
East Iceland Food Coop!
Ég var að panta mér í fyrsta sinn fullan kassa að lífrænum ávöxtum og grænmeti í bland, heil 7.5 kíló takk fyrir sæll! Í kassanum var eitthvað af því sem ég hef nú ekki mikið verið að kaupa út í búð, né að nota beint í matargerð svo það er komin áskorun á mig sjálfa að bæði fræðast...
February 03, 2025
Mannamót 17.janúar 2025!
Hluti 3
Mannamót er haldið af Markaðsstofur Landshlutanna í samstarfi við Íslandsstofu, Ferðamálastofu, Samtök ferðaþjónustunnar og Íslenska Ferðaklasans viðburð þar sem ferðaþjónustu aðilar landshlutanna koma saman og kynna fyrirtæki sín og þjónustu.
February 01, 2025
Mannamót 17.janúar 2025!
Hluti 2
Mannamót er haldið af Markaðsstofur Landshlutanna í samstarfi við Íslandsstofu, Ferðamálastofu, Samtök ferðaþjónustunnar og Íslenska Ferðaklasans viðburð þar sem ferðaþjónustu aðilar landshlutanna koma saman og kynna fyrirtæki sín og þjónustu.